AÐ AFSAKA

Málið

Úr safni. Skrifað 12. apríl 2025

Sögnin að afsaka merkir að leysa einhvern undan sekt, af-saka. Við getum vissulega afsakað okkur sjálf, til dæmis með því að bjóða fram eintómar afsakanir. 

Venjulegra er samt að sá sem gerir eitthvað af sér biðjist afsökunar (sendi frá sér afsökunarbeiðni). Það kemur þá í hlut þess sem meðtekur afsökunarbeiðnina að ákveða hvort hann verður við henni og af-sakar viðkomandi.

Stundum heyrist fólk biðjast innilegrar afsökunar á mistökum. Líklega ætlar fólk þá að biðjast innilega afsökunar (eða biðjast afsökunar innilega), nema fólk sé að gera þá kröfu á þann sem tekur við afsökunarbeiðninni að hann sé innilegur þegar hann afsakar það.

Þegar við gerum mistök í beinni þá getum við ekki „afsakað tæknivandræðin“. Og ættum heldur ekki að afsaka okkur sjálf, heldur frekar að biðjast afsökunar og eftirláta hlutstendum að af-saka okkur – eða ekki.