KÆRKOMIÐ SKREF

Almennt

Tímamót urðu í íslenskri fjölmiðlasögu í dag þegar vefsíðunni hinz.is var formlega hleypt af stokkunum. Það er athvarf mitt á netinu. Slóðin hefur verið í minni eigu í nokkurn tíma, en aldrei hef ég látið verða af því að koma henni í loftið fyrr en nú. Þegar ég loks vatt mér í það útheimti það að sjálfsögðu minni vinnu en ég hafði talið sjálfum mér trú um. Megi þetta verða mér að kenningu.

Engu minni eru þau tíðindi dagsins að Stöð 2 hafi verið lögð niður – þótt hún heiti í bili Sýn.

Það er von mín að hinz.is muni brúa gjá milli mín og þjóðar, en jafnframt hjálpa mér að skrásetja og henda reiður á hugleiðingar mínar. Þetta er ekki mín fyrsta vefsíða. Hér áður fyrr rak ég vefmiðil undir nafninu agunnar.is. Þá hef ég á köflum verið mátulega duglegur að stinga niður penna.

Vera má að eldra efni, birt og óbirt, fái að seytla inn á hinz.is með tíð og tíma. Það verður þá skilmerkilega aðgreint frá nýju efni.

Myndin er tekin í bæverskum skógi í vor. Ljósmynd: LEX