Formáli

Lengi hefur það verið markmið mitt að gera meira. Tími okkar á þessari jörð er af skornum skammti og aldrei er það áþreifanlegra en á sumrin.

Því var það sannarlega ánægjulegt þegar ég rakst á vefdagbók Svavars Kjarrvals, lögfræðings hér í bæ. Hann hefur um nokkurra ára skeið sett sér svokölluð sumarmarkmið og birt greinargótt yfirlit yfir framvindu þeirra.

Svo vel leist mér á uppátæki Svavars að ég ákvað að setja mér mín eigin markmið. Verklagsreglur, skilgreiningar og framsetning eru undir áhrifum frá Svavari en þó ekki bundnar af hans háttum.