Sumarmarkmið 2025

Eðli sumarmarkmiða:

  • Sumarmarkmið skiptast í aðalmarkmið og varamarkmið.
  • Með aðalmarkmiðum er átt við markmið sem allt kapp er lagt á að klára
  • Með varamarkmiðum er átt við tillögur að verkefnum fyrir sumarið, án þess að endilega sé stefnt að því að ljúka þeim
  • Sérhvert sumarmarkmið skal uppfylla mælanleikaskilyrðið, þ.e. að hægt sé að segja til með skýrum hætti (mæla) hvort því sé lokið eða ekki. Þannig væru læra spænsku eða heimsækja ömmu oftar illa útfærð sumarmarkmið. En heimsækja ömmu tíu sinnum væri betur útfært.
  • Forðast skal markmið sem kveða á um að athöfn sé framkvæmd með tilteknu millibili (t.d. læra spænsku í hálftíma á dag). Slík markmið úreldast við það eitt að missa út eina viku. Betra er að kveða á um tiltekinn fjölda athafna yfir allt sumarið.
  • Frestur til að ljúka sumarmarkmiðum er til 24. ágúst 2025, nema annað sé tekið fram.
  • Öll talning á athöfnum miðast við þann dag sem markmiðin eru formlega gefin út. Heimilt er að bæta varamarkmiðum á listann eftir formlega útgáfu.

Drög – Sumarmarkmið 2025 hafa ekki verið sett.

Aðalmarkmið

  • Gera við rafhjól
    Pumpa þarf í dekk rafhjólsins og stilla það þannig að það hristist ekki á ferð. Æskilegt er að þessu markmiði verði náð án tilkostnaðar.
  • Fara 6 sinnum í félagsróður kajakfélagsins
  • Fara í eina kajakferð utan höfuðborgarsvæðisins.
  • Hlaupa hálfmaraþon
  • Láta rafvirkja endurnýja rafmagnsklær á Leifsgötu
  • Skipta út einu húsgagni á Leifsgötu
  • Verja fimm nóttum á Vestfjörðum
  • Lesa þrjár skáldsögur
  • Halda tvö samkvæmi á Leifsgötu
    Með samkvæmi er átt við að minnst fimm manns, að mér undanskildum, séu samankomnir í íbúðinni í að minnsta kosti fimmtán mínútur af fúsum og frjálsum vilja.
  • Fara fimm sinnum í skvass

Varamarkmið:

  • Skipta bókahillu út
  • Kaupa tvo hvíta hlýraboli í Verslun Guðsteins